Flóttafólk á Íslandi

Eldfjöll, sundlaugar, ís og nammi í uppáhaldi
Skapandi sumarnámskeið ætlað úkraínskum börnum sem flúið hafa hingað til lands hefur vakið mikla lukku, en þar fá þau útrás fyrir sköpunargleðina. Þau segjast hrifin af Íslandi, en eldfjöll, sundlaugar og rjómaís eru á meðal þess sem þeim finnst best við landið.

„Markmiðið er að leyfa börnunum að vera börn“
Kennari sem starfað hefur með úkraínskum flóttabörnum síðustu mánuði freistar þess nú að fjármagna sumarnámskeið fyrir börnin, með sölu á bók nokkurri. Markmiðið með námskeiðinu, og starfinu öllu, er að börnin fái að vera börn.

147 umsækjendur um alþjóðlega vernd bíða brottvísunar, þar af 20 börn
Hinn 1. júní síðastliðinn biðu 169 einstaklingar frávísunar eða brottvísunar, þar af 22 börn. Af þessum 169 hafa 147 fengið synjun á umsókn um alþjóðlega vernd, þar af 20 börn.

Alþingi endurskoðar málsmeðferð við veitingu ríkisborgararéttar
Mikilvægt er að heimildir Alþingis til veitingar ríkisborgararéttar verði ekki þrengdar við endurskoðun á fyrirkomulaginu segir þingmaður Pírata. Nefnd um breytingar á því hefur verið stofnuð og niðurstaða á að liggja fyrir í haust.

Fornir fjendur hlutu sameiginlegan styrk frá UEFA til að aðstoða flóttafólk og hælisleitendur
KR og Valur hlutu í vikunni styrk frá Knattspyrnusambandi Evrópu, UEFA, vegna verkefnis tengdu málefnum flóttafólks og hælisleitenda. Frá þessu er greint á vef Knattspyrnusambands Íslands.

Felldu tillögu minnihlutans: „Þau vilja halda þessu í útlendingafrumvarpinu til að réttlæta ógeðið“
Á síðasta þingfundi löggjafarþingsins felldu stjórnarliðar tillögu minnihlutans um að veita Úkraínumönnum, sem komið hafa til landsins vegna stríðsins, atvinnuleyfi samhliða dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Þingkona Pírata telur að brögð séu í tafli og að stjórnarliðar hafi viljað halda sambærilegu ákvæði í útlendingalögum til að réttlæta ýmis önnur ákvæði í því frumvarpi.

Engum verið fylgt úr landi enn sem komið er
Í lok síðasta mánaðar stóð til að vísa alls 197 hælisleitendum úr landi, þar af 44 til Grikklands. Stoðdeild Ríkislögreglustjóra ákvað að byrja á hópnum sem senda átti til Grikklands en enn sem komið er hefur engum verið fylgt þangað.

Baráttunni fyrir ríkisborgararétti loksins lokið
22 ára maður frá Nígeríu, sem lenti í mansali og kynferðisofbeldi á flótta frá heimalandi sínu, er orðinn íslenskur ríkisborgari eftir margra ára baráttu. Hann er nú staðráðinn í að skapa sér líf á Íslandi en fyrst á dagskrá er að læra íslensku.

Taka fyrir 25 af 70 umsóknum um ríkisborgararétt
Þingflokkar hafa náð saman um að taka fyrir 25 af 70 umsóknum um ríkisborgararétt sem Alþingi hefur borist. Því virðist búið að ná samkomulagi um öll atriði í þinglokasamningum sem þýðir að þinglokin ættu að ganga smurt fyrir sig. Þingið klárast í kvöld eða í fyrramálið.

Ósætti um veitingu ríkisborgararéttar gæti sett þinglok í uppnám
Þó þingflokkar hafi náð saman um heildarramma þingloka standa örfá mál eftir sem ekki hefur enn tekist að ná sátt um. Samkvæmt heimildum fréttastofu er veiting ríkisborgararéttar þar stærst og enn lengst á milli flokkanna í því. Nái þeir ekki saman um það í kvöld eða snemma á morgun gæti þetta sett þinglok í algert uppnám.

Örfá dæmi um að íslensk stjórnvöld hafi ekki nýtt sér Dyflinarreglugerðina
Fjöldi þeirra sem sótt hefur um alþjóðlega vernd í Evrópu hefur ekki verið meiri frá því borgarastyrjöldin í Sýrlandi var í algleymingi árið 2016. Þá hefur staða flóttafólks sjaldan verið jafn slæm. Stofnandi Solaris flóttamannasamtakanna telur að afnám Dyflinarreglugerðarinnar myndi bæta stöðu þess til muna.

Fyrstu gæludýr úkraínskra flóttamanna koma til landsins í dag
Tekið verður á móti tveimur hundum á nýrri einangrunarstöð Matvælastofnunar á Kjalarnesi í dag. Hundarnir tveir eru fyrstu gæludýrin í eigu flóttafólks frá Úkraínu sem tekið er á móti en von er á fleiri dýrum á komandi vikum. Þetta kemur fram í tilkynningu Matvælastofnunar í dag.

Ungt félagshyggjufólk um allan heim fordæmir fjöldabrottvísanir
Alþjóðasamtök ungliðahreyfinga jafnaðar- og félagshyggjuflokka (IUSY) fordæma fyrirhugaðar fjöldabrottvísanir flóttafólks á Íslandi. Neyðarályktun þess efnis var samþykkt með öllum greiddum atkvæðum á heimsþingi IUSY sem fór fram í höfuðborg Albaníu dagana 2.-4. júní.

Útlendingafrumvarpi Jóns frestað fram á haust
Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra hefur frestað afgreiðslu útlendingafrumvarps síns fram á haust. Jón segir þetta gert til að liðka fyrir þinglokum. Það er því ljóst að málamiðlanir ríkisstjórnarinnar báru ekki árangur.

Ævintýralegur flótti upp á líf og dauða er ljóslifandi í huga úkraínskrar fjölskyldu
Ævintýralegur flótti upp á líf og dauða er ljóslifandi í huga úkraínskar fjölskyldu sem var föst í hrikalegum aðstæðum í Maríupól í rúman mánuð, en er nú komin til Íslands.

Einstaklingar hafi „farið í þannig ástand“ við handtöku að þeim var gefið róandi
Upp hafa komið tilvik þar sem einstaklingar sem flytja á úr landi í fylgd hafa „farið í þannig ástand“ að nauðsynlegt hefur þótt að gefa viðkomandi róandi lyf. Þetta hefur verið gert til að koma í veg fyrir að viðkomandi skaði sjálfan sig eða aðra.

Ný miðstöð fyrir úkraínska flóttamenn var opnuð á Aflagranda
Í gær var ný miðstöð fyrir úkraínska flóttamenn opnuð á Aflagranda. Húsnæðið sem starfsemin var áður í er sprungið utan af starfseminni. Um 300 manns komu saman í nýja húsnæðinu í kvöld.

Vinna ríkisstjórnarinnar ótrúverðug ef frumvarp Jóns nær fram að ganga
Þingmaður Pírata segir að ríkisstjórnin geti ekki sett á fót ráðherranefnd sem endurskoða eigi útlendingamál á sama tíma og samþykkja eigi útlendingafrumvarp dómsmálaráðherra. Forsætisráðherra segir að með nefndinni sé verið að setja útlendingamál í forgang.

Prestar innflytjenda segja ríkisstjórnina ætla að senda fólk á götuna
Prestar innflytjenda og flóttafólks hjá Þjóðkirkjunni hafa sent allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis umsögn er varðar frumvarp til breytinga á útlendingalögum. Þar er frumvarpið harðlega gagnrýnt og talið að með því verði grundvallarbjargráð tekin frá flóttafólki og því hent á götuna.

Líður eins og hún hafi svikið fjölskyldu sína með því að flýja Úkraínu
Úkraínsk kona sem kom hingað til lands á miðvikudag á flótta frá heimalandi sínu segist óttast það að heimsbyggðin missi áhugann á stríðinu í Úkraínu. Þá líður henni eins og hún hafi svikið fjölskyldu sína með því að flýja stríðið.